{"product_id":"montrukor-stakt-skipti","title":"Möntrukór | Stakt kvöld 📿","description":"\u003cdiv class=\"x11i5rnm xat24cr x1mh8g0r x1vvkbs xtlvy1s\"\u003e\n\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cp data-start=\"154\" data-end=\"476\"\u003eVerð fyrir tíma með kakóbolla 4.500kr\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-start=\"154\" data-end=\"476\"\u003eVerð fyrir stakan hefðbundinn tíma 3.500kr\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-start=\"154\" data-end=\"476\"\u003eMöntrukórinn er opinn öllum sem vilja hittast einu sinni í viku, kyrja saman og syngja söngva og möntrur. Í hverjum tíma er ein mantra í sérstökum fókus, mantra vikunnar. Við rýnum í merkingu hennar, tilgang og áhrif, og ef henni fylgir \u003cem data-start=\"402\" data-end=\"409\"\u003emudra\u003c\/em\u003e (sérstök líkamsstaða eða handahreyfingar) lærum við hana einnig.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-start=\"478\" data-end=\"828\"\u003eMantran er síðan kyrjuð lengi og af einlægni, þannig að hún nái djúpt inn í líkama og huga. Þátttakendur eru hvattir til að halda áfram að kyrja hana heima milli tíma, til að upplifa áhrifin betur og skapa tengingu. Næsti tími hefst svo á sömu möntrunni þannig að við tengjumst henni enn dýpra. Síðan syngjum við fleiri lög og möntrur saman, eins og tími leyfir, og kynnum inn nýja möntru vikunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-start=\"830\" data-end=\"1090\"\u003eVið tökum blöndu af möntrum sem kórinn þekkir frá fyrri árum og nýjum möntrum sem ekki hafa verið sungnar áður. Einnig verður sérstök tilbreyting í vetur þar sem gestakennarar munu bjóða upp á nýja upplifun, svo sem vinnu með röddina eða hljóðheilun. \u003c\/p\u003e\n\u003cp data-start=\"1303\" data-end=\"1414\"\u003e\u003cstrong data-start=\"1303\" data-end=\"1327\"\u003eTími og staðsetning:\u003c\/strong\u003e\u003cbr data-start=\"1327\" data-end=\"1330\"\u003eÞriðjudagskvöld kl. 20:00–21:30 í salnum \u003cem data-start=\"1371\" data-end=\"1384\"\u003eLeiðin heim\u003c\/em\u003e, Laugavegi 178 við Bolholt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-start=\"1303\" data-end=\"1414\"\u003e...\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-start=\"1303\" data-end=\"1414\"\u003eKórstjóri Möntrukórsins er \u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eEygló Scheving. Hún er tónlistarkona, lærður kundalini yogakennari og hljómheilari. Hún kynntist fyrir alvöru heilunarmætti tónlistar fyrir nokkrum árum í gegnum möntrur og kirtan söng. Þá sótti hún námskeið og lærði mikið möntrur og aðra heilunarsöngva ásamt því að semja nýja sem hún hefur svo leikið við ýmsar aðstæður og á viðburðum. Áhuginn sem kviknaði þarna leiddi hana í kundalini jógakennaranám hjá Satya Yoga Academy í Kanada, en í kundalini yoga er mikið notast við möntrur til að hreyfa við orkunni innra með okkur. Í kjölfarið á því fór hún að kynna sér betur heim hljómheilunar og tónslökunar og því hvernig hljómar og víbringur getur nýst sem öflugt tól þegar kemur að heilun á huga og líkama. Það stýrði henni inn í næsta ævintýri, til Brighton á Englandi þar sem hún nam tónheilun hjá hörpuleikaranum Siobhan Swider í gegnum Sound healing academy í Bretlandi. Þó nám og kunnátta annara sé oft gagnleg og lærdómsríkt er það að stærstum hluta innsæið og tilfinningin sem stjórnar för.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/div\u003e","brand":"KARMAÐ","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48188776153344,"sku":null,"price":3500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0678\/1530\/9568\/files\/karmad-fbeventsq.png?v=1728320348","url":"https:\/\/karmad.is\/products\/montrukor-stakt-skipti","provider":"KARMAÐ","version":"1.0","type":"link"}