1
/
of
2
KARMA
Möntrusöngur og kakó í hádeginu á mánudögum 📿
Möntrusöngur og kakó í hádeginu á mánudögum 📿
Venjulegt verð
3.500 ISK
Venjulegt verð
Tilboðsverð
3.500 ISK
Stykkjaverð
/
per
Skattur innifalinn
Couldn't load pickup availability
Skráning neðst á síðu ↯
Förum mjúklega af stað, stillum okkur af og hefjum vikuna í jafnvægi og ró.
Notalega kakóstund í White Lotus salnum, Bankastræti 2 (Sama stað og Mama veitingahús) í hádeginu á mánudögum frá kl: 12 - 13. Stundin hefst á ilmandi ceremonial kakóbolla frá Guatemala, syngjum svo saman nokkrar möntrur og söngva og endum á róandi slökun. Byrjum vikuna vel og gefum okkur nærandi stund til lenda eftir helgina, hvíla taugakerfið og gefa jafnvægi og orku inn í restina af vikunni.
✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨ ✨
English:
A gentle way to begin the week, tune in and find balance and calm. This cozy lunchtime gathering takes place in the White Lotus hall, Bankastræti 2 (the same location as Mama restaurant), on Mondays from 12:00 to 13:00. The hour begins with a cup of ceremonial cacao from Guatemala, followed by simple mantra singing together with a few Icelandic songs. No singing experience is needed and everyone is welcome just as they are. The gathering ends with a short, relaxing rest. It is a nourishing way to land after the weekend, give the nervous system some rest and bring balance and fresh energy into the week, while also offering a beautiful way to experience Icelandic music woven together with mantra singing.

Um okkur:
Eygló Scheving er tónlistarkona, lærður kundalini yogakennari, hljómheilari og kórstjóri m-möntrukórsins. Hún kynntist fyrir alvöru heilunarmætti tónlistar fyrir nokkrum árum í gegnum möntrur og kirtan söng. Þá sótti hún námskeið og lærði mikið möntrur og aðra heilunarsöngva ásamt því að semja nýja sem hún hefur svo leikið við ýmsar aðstæður og á viðburðum. Áhuginn sem kviknaði þarna leiddi hana í kundalini jógakennaranám hjá Satya Yoga Academy í Kanada, en í kundalini yoga er mikið notast við möntrur til að hreyfa við orkunni innra með okkur. Í kjölfarið á því fór hún að kynna sér betur heim hljómheilunar og tónslökunar og því hvernig hljómar og víbringur getur nýst sem öflugt tól þegar kemur að heilun á huga og líkama. Það stýrði henni inn í næsta ævintýri, til Brighton á Englandi þar sem hún nam tónheilun hjá hörpuleikaranum Siobhan Swider í gegnum Sound healing academy í Bretlandi. Þó nám og kunnátta annara sé oft gagnleg og lærdómsríkt er það að stærstum hluta innsæið og tilfinningin sem stjórnar för. Þess vegna er enginn viðburður eða einkatími eins.
✨
Kristrún Kristjánsdóttir kemur úr kyrrð sveitarinnar í Miðfirði, þar sem hún ólst upp umvafin náttúru og ró. Kristrún er menntaður hjúkrunarfræðingur, móðir, jógakennari og texta og lagahöfundur svo fátt eitt sé nefnt.
Söngurinn og tónlistin hefur ávallt verið hennar stærsta ástríða og síðustu ár hefur hún farið í gegnum sjálfsleiðangur þar sem hún hefur tengst tónlistinni og söngnum enn dýpra. Hún hefur fengið að upplifa á eigin skinni hvernig tónarnir geta róað taugakerfið og hjálpað til við að sitja með tilfinningum og í núvitund.
Möntrursöngur spilar þar stórt hlutverk og hefur hún verið í Möntrukórnum með EYGLÓ, farið á hin ýmsu námskeið og verið með tónheilun og söng, bæði í vinnu sinni sem hjúkrunarfræðingur, jógakennari og tónlistarkona.
Lögin hennar og textar spretta úr innsta kjarna og endurspegla hennar sýn og von um sjálfsást fyrir öll. Möntrurnar eða lögin hjálpar henni og öðrum að takast á við, upplifa, sleppa tökum og komast í gegnum þau verkefni sem lífið færir. Rauði þráðurinn er ávallt að finna ástina innra með hverju og einu okkar.
Share