Skip to product information
1 of 1

KARMAÐ

Sari Seramor | Early bird verð til 10. sept

Sari Seramor | Early bird verð til 10. sept

Venjulegt verð 25.900 ISK
Venjulegt verð Tilboðsverð 25.900 ISK
Tilboð Uppselt
Skattur innifalinn
Sari Seramor

Sari Seramor á Íslandi

Sari Seramor er portúgölsk söngkona, lagahöfundur og fjölhljóðfæraleikari með kraftmikla rödd og einstaka nærveru. Tónlist hennar sækir áhrif í reggae, þjóðlagatónlist, latneska takta og möntrur, en það sem einkennir Sari öðru fremur er hæfileikinn til að skapa einlæga tengingu í gegnum tónlistina og fá fólk til að verða hluti af upplifuninni.

Í september kemur Sari til Íslands og býður upp á þrjá viðburði sem hægt er að upplifa saman eða hvern fyrir sig.

Tónleikar – fimmtudagur 24. sept

Heimsókn Sari hefst með tónleikum þar sem hún býður okkur inn í lifandi tónlistarferðalag. Reggae, þjóðlagatónlist, latneskir taktar og möntrur fléttast saman við sögur, spuna og sameiginlegan söng.

Með kraftmikilli rödd og einstöku næmi fyrir augnablikinu leiðir hún salinn frá kyrrum og innilegum augnablikum yfir í kraft, gleði, dans og fögnuð.

Somatic Voice Activation Workshop – laugardagur 26. sept 

Vinnustofa þar sem þátttakendur fá að kanna röddina á frjálsan og skapandi hátt í gegnum öndun, hreyfingu, hljóð og spuna.

Sari leiðir þátttakendur í gegnum æfingar sem hjálpa okkur að losa um röddina, tjá okkur frjálsar og tengjast betur eigin krafti, leikgleði og sjálfstrausti. Hér snýst ekki um að syngja „rétt“ heldur að uppgötva röddina sem náttúrulegan hluta af okkur sjálfum og njóta þess að nota hana.

Engin reynsla af söng er nauðsynleg.

Kakó ceremónía & sönghringur – laugardagur 26. sept 

Síðar sama dag komum við saman í djúpa og nærandi samverustund yfir heilögu kakói frá Ashaninka fólkinu í perúska Amazon frumskóginum.

Stundin hefst með kakó athöfn og þaðan leiðir Sari hópinn inn í tónlistina með einföldum laglínum, endurtekningu og sameiginlegum söng. Smám saman verða margar ólíkar raddir að einni heild.

Ferðalagið liggur frá kyrrð og íhugun yfir í opnun, gleði og kraftmikinn samsöng. Þú þarft enga reynslu af söng, aðeins löngun til að hlusta, tjá þig og deila röddinni þinni.

Upplifðu alla viðburðina

Fyrir þau sem vilja upplifa allt sem Sari býður upp á á Íslandi er hægt að kaupa sérstakan afsláttarpakka sem veitir aðgang að öllum þremur viðburðunum: tónleikunum á fimmtudegi, Somatic Voice Activation Workshop og kakó ceremóníunni & sönghringnum á laugardegi.

Pakkaverð fyrir alla viðburði
29.900 kr.

Early Bird pakkaverð
25.900 kr.

Verð á staka viðburði

Tónleikar: 8.900 kr. (Miðasala á tónleika fer fram á tix.is) 
Somatic Voice Activation Workshop: 14.900 kr.
Kakó athöfn & sönghringur:  9.900 kr.

Nánari upplýsingar

Tónleikar
Dagsetning: Fimmtudagur 24. september
Tími: 20:00–22:00
Staðsetning: White Lotus / Mama Veitingarhús
Bankastræti 2, Reykjavík

Somatic Voice Activation Workshop
Dagsetning: Laugardagur 26. september
Tími: 12:00–16:00
Staðsetning: Bolholt 4, 4. hæð, Reykjavík

Kakó ceremónía & sönghringur
Dagsetning: Laugardagur 26. september
Tími: 17:00–19:00
Staðsetning: Bolholt 4, 4. hæð, Reykjavík




Skoða nánari upplýsingar